Forsíða


Hugbúnaður


Hugbúnaðargerð


Vörur og þjónusta


Um okkur


Hafðu samband


     

Öryggisvöktun

Securitas hf., sem er stærsta öryggisgæslufyrirtæki landsins með yfir tíu þúsund viðskiptavini, notar hugbúnað frá Samsýn ehf. til að vakta öryggi viðskiptavina sinna. Þegar Securitas flutti stjórnstöð sína frá Síðumúla 23 í Skógahlíð þá var ákveðið að semja við Hnit hf. um þróun og innleiðingu nýs stjórnstöðvarkerfis.

Samsýn ehf. hefur tekið við þróun kerfa fyrir öryggisvöktun og þjónustu við öryggisfyrirtæki.

Kerfið var fyrst tekið í notkun árið 1998 og hefur verið í farsælum rekstri síðan. Kerfið nær til allra þátta öryggisvöktunar frá heimavörn til verðmætaflutninga, og er jafnframt samtengt landupplýsingakerfinu SiteWatch og símahugbúnaði Samsýnar ehf.. Með kerfinu er brugðist við yfir 600 þúsund öryggisboðum á ári á starfsstöðvum Securitas í Skógarhlíð í Síðumúla og á Akureyri. Frá fyrstu tíð hafa sérfræðingar Securitas hf. og Samsýnar ehf. unnið náið saman að framþróun kerfisins.

 
Samsýn ehf. Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík, sími 570 0570, fax 570 0503, © 2006 Samsýn ehf