Forsíða


Hugbúnaður


Hugbúnaðargerð


Vörur og þjónusta


Um okkur


Hafðu samband


     

Samsýn ehf. hefur komið að gerð fjölmargra kortavefsjáa, bæði fyrir innranet fyrirtækja og einnig fyrir miðluna landupplýsinga á veraldarvefnum.   Kortavefsjá er góð leið til að ná til breiðs hóps á vefnum og einnig til að miðla upplýsingum til starfsfólks fyrirtækja á mismunandi stöðum á landinu.

meðal kortavefsjáa eru

Vefur unninn í samstarfi við Reykjavíkurborg til að kortleggja ferðavenjur skólabarna til og frá skóla.  Þar skrá börnin inn á kort hvernig þau komu í skólann og hvar þeim finnst þau vera óörugg og hvers vegna þeim finnst þau óörugg.

Vefur Náttúrufræðistofnunar Íslands þar sem hægt er að skoða hina ýsmu plöntuhópa og hvernig þeir þekja landið.

Vefur Reykjavíkurborgar sem veitir grunnupplýsingar úr gögnum LUKR auk ýmsan fróðleik um umhverfi borgarbúa.

Vefsjá Landlæknisembættisins þar sem hægt er að skoða upplýsingar um aldraða og öldrunarmál.

Kortavefur símaskrárinnar.  Birtir staðsetningu heimilisfanga, upplýsingar um ýmsa þjónustu svo sem gististaði, veitingahús.  Einnig er vegvísun þar sem hægt er að finna bestu leið frá A til B.

  • Kortaþjónusta

Samsýn bíður upp á einfalda kortavefsjá sem hægt er að sníða inn í vefsíður og birta annahvort sem hefðbundið kort eða sem loftmynd.

 

 
Samsýn ehf. Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík, sími 570 0570, fax 570 0503, © 2006 Samsýn ehf